Reykjavík, 1. júlí, 2013 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir júní eru eftirfarandi:
· Viðskipti með hlutabréf í júní námu 15.316 milljónum eða 806 milljónum á dag. Það er 77% hækkun á milli ára, samanborið við 456 milljóna króna veltu á dag í júní 2012. Þetta er 58% lækkun frá fyrri mánuði, en viðskipti með hlutabréf í maímánuði námu 1.916 milljónum á dag.
· Mest voru viðskipti með hlutabréf Regins (REGINN), 5.167 milljónir, Tryggingamiðstöðvarinnar (TM), 2.035 milljónir, Eimskips (EIM) 1.921 milljón, og Vátryggingafélags Íslands (VÍS), 1.847 milljónir.
· Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 0,1% milli mánaða og stendur nú í 1.124 stigum.
· Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 37,3% (23,7% á árinu), Íslandsbanki með 21,9% (26,9% á árinu), og Arion banki með 15,0% (13,8% á árinu).
· Viðskipti með skuldabréf námu 136 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 7,2 milljarða veltu á dag. Þetta er 36% lækkun á milli ára, samanborið við 11,2 milljarða veltu á dag í júní 2012, og 28% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í maí námu 9,9 milljörðum á dag).
· Alls námu viðskipti með ríkisbréf 100,9 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 32,2 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 14 0314, 18,5 milljarðar, RIKB 19 0226, 16,9 milljarðar, RIKS 21 0414, 13,1 milljarður og HFF150224, 11,6 milljarðar.
· Í júnímánuði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina á skuldabréfamarkaði 25,9% (22,3% á árinu), Íslandsbanki með 23,3% (20,1% á árinu) og MP Banki með 18,0% (19,6% á árinu).
Í lok júní voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 471 milljarði króna (samanborið við 326 milljarða í júní 2012).
Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá viðhengi og http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/
#
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.
About NASDAQ OMX Group
NASDAQ OMX Group, Inc., frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, eflir efnahagslíf og býður upp á framsæknar tæknilausnir sem spanna allan viðskiptaferilinn – frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Við erum heimili 3.300 fyrirtækja með heildarmarkaðsvirði í kringum 6 milljarða Bandaríkjadala, hvers nýsköpun móta samfélagið okkar, og veitum hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Velkomin þangað sem heimurinn tekur daglega stórt stökk fram á við. Velkomin til NASDAQ OMX aldarinnar. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni).
Kristín Jóhannsdóttir
kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
525 2844/868 9836