Hagnaður annars ársfjórðungs nam 207 milljónum króna og jókst um 138% milli ára
- EBITDA tímabilsins nam 732 m.kr. og jókst um 9% frá fyrra ári
- Besta afkoma annars ársfjórðungs á síðustu 5 árum
- Ráðgert að EBITDA hagnaður á árinu verði 2,75 til 2,9 milljarðar króna og fjárfestingar verði á bilinu 9,5-10,5% af tekjum ársins
- Fjárhagslegur styrkur félagsins eykst enn og er eiginfjárhlutfall nú 43,9%
- Handbært fé frá rekstri jókst um 31% miðað við sama tímabil í fyrra
- Gagnaflutnings- og sjónvarpstekjur jukust en farsímatekjur drógust saman
Ómar Svavarsson, forstjóri:
"Rekstur Vodafone gekk mjög vel á öðrum fjórðungi ársins. Við skiluðum bestu afkomu annars ársfjórðungs á undanförnum fimm árum, horfur fyrir seinni helming ársins eru jákvæðar og reksturinn er heilt á litið í góðu jafnvægi.
Ýmislegt stendur upp úr þegar uppgjörið er skoðað. Rekstrarkostnaður hefur lækkað sem og fjármagnskostnaður og þótt framlegð lækki í krónum talið milli tímabila hækkar hún hlutfallslega. Má rekja það til lægri lúkningar- og reikigjalda sem og lækkunar á aðkeyptum kostnaði á móti lægri tekjum. Verkefni okkar á næstu árum verður að viðhalda og styrkja fjölbreytta tekjustofna félagsins og laga þá að tækniþróuninni á hverjum tíma. Þá hugsun höfum við þegar tileinkað okkar, eins og sést m.a. í fjölmörgum nýjungum sem Vodafone hefur kynnt á undanförnum mánuðum. Þær hafa verið þróaðar í samstarfi við Vodafone Group Plc. og taka mið af þeim breytingum sem orðið hafa á farsímanotkun með tilkomu snjalltækja af ýmsu tagi. Þær breytingar skapa fjölmörg tækifæri, því fjarskiptaþarfir fyrirtækja og einstaklinga hafa aldrei verið meiri en nú.
Vodafone er vel í stakk búið til að grípa þau tækifæri sem bjóðast á fjarskiptamarkaði enda stendur fyrirtækið sterkum fótum, rétt eins og góður efnahagsreikningur félagsins sýnir. Þetta er í senn sveigjanlegt og traust félag og horfur fyrir árið í heild eru jákvæðar."
Horfur fyrir afkomu á árinu 2013:
Ákveðið hefur verið að birta horfur um rekstrarafkomu ársins 2013. Horfurnar taka til áætlaðs EBITDA hagnaðar ársins og ráðgerðs fjárfestingarhlutfalls.

- EBITDA hagnaður ársins 2013 verði á bilinu 2,75 til 2,9 milljarðar króna
- Fjárfestingahlutfall verði á bilinu 9,5-10,5%