Á dagskrá hluthafafundar í Tryggingamiðstöðinni hf. 20. ágúst 2013 er kosning nýrrar stjórnar í félaginu. Samkvæmt samþykktum félagsins skipa stjórnina fimm menn og jafnmargir til vara.
Frestur til að bjóða sig fram til stjórnar er nú runninn út og hafa eftirtalin boðið sig fram:
Í aðalstjórn:
Andri Þór Guðmundsson forstjóri, kt. 240966-2989,
Bjarki Már Baxter yfirlögfræðingur, kt. 170382-3159,
Elín Jónsdóttir lögfræðingur LL.M, ráðgjafi, kt. 130866-6039,
Kristín Friðgeirsdóttir verkfræðingur Ph.D., dósent, kt. 090871-5369, og
Örvar Kærnested fjárfestir og ráðgjafi, kt. 130776-4429.
Í varstjórn:
Ármann Harri Þorvaldsson ráðgjafi, kt. 151268-3239,
Bryndís Hrafnkelsdóttir forstjóri, kt. 070864-7899,
Daði Bjarnason héraðsdómslögmaður, kt. 290874-5649,
Helga Kristín Auðunsdóttir lögfræðingur LL.M, sviðstjóri, kt. 020880-5389, og
Þórunn Pálsdóttir verkfræðingur MBA, kt. 061065-8069.
Fleiri hafa ekki boðið sig fram en sem nemur þeim fjölda sem stjórnina skipa. Samkvæmt því mun ekki koma til stjórnarkosningar á hluthafafundinum.
Skipan stjórnar eins og að framan greinir fullnægir ákvæðum hlutafélagalaga sem taka gildi 1. september nk. um lágmarkshlutfall beggja kynja í stjórninni.