REYKJAVÍK, 12. nóvember, 2013 - NASDAQ OMX Group, Inc. (NASDAQ: NDAQ) tilkynnir í dag að Einar Snorri Sigurjónsson sem sinnt hefur framkvæmdastjórastöðu Verðbréfaskráningar Íslands um árabil, hefur látið af störfum. Stefnt er að því að ganga frá ráðningu í hans stað innan skamms, en Magnús Kristinn Ásgeirsson, lögfræðingur hjá NASDAQ OMX Iceland mun tímabundið gegna stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Stjórn Verðbréfaskráningar Íslands þakkar Einari fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
#
Um Verðbréfaskráningu Íslands
Verðbréfaskráning Íslands var stofnuð 1997 af öllum markaðsaðilum til að gefa út og skrá rafrænt verðbréf á íslenskum verðbréfamarkaði. Félagið starfar skv. lögum no. 131/1997. Starfsleyfi frá Viðskiptaráðuneyti fékkst 9. júní árið 2000 og starfsemi hófst 14. júní 2000. Þann 6. júní 2002 var stofnað Eignarhaldsfélagið Verðbréfaþing hf. um rekstur Kauphallar Íslands hf. og Verðbréfaskráningu Íslands hf. Þann 1. desember 2006 var gengið frá kaupum OMX að Verðbréfaþingi og frá febrúar 2008 hefur Verðbréfaþing verið í eigu bandarísku kauphallarsamstæðunnar NASDAQ OMX Group Inc.. Meginverkefni Verðbréfaskráningar felast í rafrænni útgáfu og vörslu verðbréfa og færslu eignaréttinda milli VS reikninga innan tölvukerfis Verðbréfaskráningar. Einnig eru uppgjör verðbréfaviðskipta með rafrænt skráð bréf hjá hjá bönkum og verðbréfafyrirtækjum framkvæmd hjá fyrirtækinu. Verðbréfaskráning Íslands annast einnig ýmsa þjónustu fyrir hlutafélög s.s. hluthafaskrá, arðgreiðslur, sameiningar ofl.
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.
Um NASDAQ OMX Group Inc.
NASDAQ OMX Group, Inc., frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, eflir efnahagslíf og býður upp á framsæknar tæknilausnir sem spanna allan viðskiptaferilinn – frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Við erum heimili 3.300 fyrirtækja með heildarmarkaðsvirði í kringum 6 milljarða Bandaríkjadala, hvers nýsköpun móta samfélagið okkar, og veitum hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Velkomin þangað sem heimurinn tekur daglega stórt stökk fram á við. Velkomin til NASDAQ OMX aldarinnar. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni).
Kristín Jóhannsdóttir
S: 525 2844
KRISTIN.JOHANNSDOTTIR@NASDAQOMX.COM