Fagfjárfestasjóðurinn ORK - Árshlutauppgjör júní 2014


Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Hagnaður af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 16 þúsundum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
     
  • Heildareignir sjóðsins námu 6.255 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Hrein eign sjóðsins nam 656 þúsund krónum samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Í áritun endurskoðenda vegna könnunar, kemur fram að ekkert bendi til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2014 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur.



Nánari upplýsingar um árshlutareikning Fagfjárfestasjóðsins ORK veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 585 6500.


Anhänge

Árshlutareikningur ORK 30.6.2014 með áritunum.pdf
GlobeNewswire