HELSTU NIÐURSTÖÐUR
* Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 6,4 ma. kr. á 2F14 (2F13: 6,6 ma.
kr.) og 14,7 ma. kr. á 1H2014 (1H2013: 11,2 ma. kr.)
* Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 14,5% í 2F14 (2F2013: 17,4%) og 16,9% á
fyrri hluta ársins (1H2013: 14,8%), þrátt fyrir að eigið fé bankans hækkaði
um 14% á milli ára úr 156 ma. kr. í 178 ma. kr.
* Eiginfjárhlutfall var áfram sterkt eða 29,3% (mars14: 30,3%) og eiginfjár-
hlutfall A (Tier 1) var 26,1% (mars2014: 27,0%). Lækkunin sem skýrist að
hluta af 2% hækkun áhættugrunns (RWA) í 674 ma. kr. (1F2014: 664 ma.kr.).
* Hreinar vaxtatekjur voru 6,9 ma. kr á 2F2014 (2F2013: 7,0 ma. kr.) og 13,6
ma.kr. á 1H2014 (1H2014: 14,5 ma.kr.) Vaxtamunur var 3,1% á 2F2014 (2F2013:
3,4%) sem er í takt við langtíma áætlanir bankans .
* Hreinar þóknanatekjur voru 2,8ma. kr. á 2F2014 (2F2013: 2,7 ma. kr.) sem er
hækkun um 5,5% á milli ára og 5,7 ma.kr. á 1H2014 (1H13: 5,1 ma.kr.)
Aukninguna má að mestu rekja til markaða, eignastýringar og dótturfélaga.
* Kostnaðarhlutfall bankans var 56,0% (2F2013: 58,8%); lækkunina má rekja til
til fækkunar starfsmanna og áframhaldandi kostnaðaraðhalds.
* Frá stofnun bankans hafa um 36,000 einstaklingar og um 4.200 fyrirtæki
fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema 561 ma.
kr.
* Öllum stórum málum sem lúta að fjárhagslegri endurskipulagningu hefur nú
verið lokið. LPA hlutfallið var 7,3% (mars14: 7,8%) og þau smærri mál sem
eftir standa munu hvert fyrir sig hafa lítil áhrif á hlutfallið. Hlutfall
vanskila umfram 90 daga var 3,5% (mars14: 3,8%).
* Heildareignir voru 908 ma. kr. (mars14: 884 ma. kr.), sem er 3% aukning frá
lokum fyrsta ársfjórðungs. Lán til viðskiptavina námu 604 ma. kr. (mars
2014: 566 ma. kr.), sem er 7% hækkun á milli fjórðunga.
* Heildarinnlán jukust í 543 ma. kr. úr 530 ma. kr. í lok mars 2013, sem má
rekja til eðlilegra sveiflna í innlánum frá viðskiptavinum og
fjármálastofnunum.
Nánari upplýsingar um afkomu bankans má finna í ítarlegri afkomutilkynningu hér
meðfylgjandi.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:
"Afkoma annars ársfjórðungs var mjög góð og skilaði bankinn arðsemi eigin fjár
upp á 14,5%. Síðustu tvo fjórðunga höfum við séð góðan vöxt í útlánum og hafa
þau aukist um 9% frá áramótum. Við sjáum einnig góðan vöxt í þóknanatekjum og
dreifist vöxturinn vel á milli tekjusviða bankans.
Kostnaðarhagræðing gengur vel og lækkar stjórnunarkostnaður um 13,4% á milli
ára. Við héldum áfram að auka sjálfvirkni og að hagræða í útibúaneti bankans.
Afgreiðslunni í Kringlunni var breytt í sjálfsafgreiðslu og við stefnum að því
að sameina útibú bankans í Lækjargötu og Eiðistorgi í eitt útibú í vesturbæ
Reykjavíkur í byrjun næsta árs. Við sjáum mikinn vöxt í notkun á Appinu og
viðskiptavinir hafa tekið nýjungunum vel en nú geta þeir m.a. greitt reikninga,
millifært og haft gott yfirlit yfir fjármálin.
Íslandsbanki gaf út skuldabréf í evrum í fyrsta sinn á ársfjórðungnum að upphæð
100 milljónir evra og markaði útgáfan tímamót fyrir bankann og íslenska
fjármálakerfið. Útgáfan fylgdi í kjölfar góðs lánshæfismats, en í apríl fékk
bankinn einkunnina BB+/B með stöðugum horfum frá S&P, sem er einu þrepi frá
íslenska ríkinu.
Traust staða Íslandsbanka á íslenskum fjármálamarkaði hefur vakið athygli
erlendis og valdi alþjóðlega fjármálatímaritið Euromoney Íslandsbanka besta
bankann á Íslandi annað árið í röð. Íslandsbanki var einnig valinn besti
fjárfestingabankinn á Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem verðlaun voru veitt
í þeim flokki hér á landi."
FJÁRFESTAKYNNING Á KIRKJUSANDI
Í dag kl. 11.30 munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara
fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans
að Kirkjusandi. Boðið verður upp á veitingar.
Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.
SÍMAFUNDUR Á ENSKU
Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.
Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.
Nánari upplýsingar veita:
* Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
440 3187.
* Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
síma 440 3925.
[HUG#1850507]