Tímabundin undanþága afturkölluð


Með vísan til fréttatilkynningar Íbúðalánasjóðs frá því fyrr í dag og að höfðu samráði við aðalmiðlara, hefur Íbúðalánasjóður ákveðið að afturkalla tímabundna undanþágu á skyldum þeirra á eftirmarkaði. Skulu skyldur aðalmiðlara skv. 3. gr. gildandi samnings milli aðalmiðlara og Íbúðalánasjóðs taka gildi á ný frá kl. 11:25 í dag.

 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Jón Björnsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Íbúðalánasjóði í síma 569 6990.

GlobeNewswire