Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur
að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið
var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 5,85% flötum vöxtum (verð: 97,1428).
Tilboðum var tekið að fjárhæð 740 m. kr. að nafnvirði. Fyrir útboðið voru
útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 5,66 ma. kr.
Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til
viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. nóvember næstkomandi.
Nánari upplýsingar veita:
* Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir,
gudbjorg.bjornsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752.
* Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 844 3678.
[HUG#1867350]