Fjarskipti hf. : Uppgjör 4. ársfjórðungs 2014 og ársins - Kynningarfundur 19. febrúar


Vodafone (Fjarskipti hf.) birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2014 og árið í heild eftir lokun markaða miðvikudaginn 18. febrúar næstkomandi.

Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 19. febrúar 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Skútuvogi 2. Fundurinn hefst kl. 8:30 en boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Vodafone og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

GlobeNewswire