Aðalfundur samþykkti samhljóða ársreikning félagsins
Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:
Tillaga um greiðslu arðs
Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 10. apríl 2015 samþykkir að greidd verði 1,50 kr. á hlut í arð vegna ársins 2014, alls að fjárhæð 2.720.488.085 kr. Arðurinn verður greiddur 30. apríl 2015. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 10. apríl 2015 og arðleysisdagur því 13. apríl 2015.
Arðsréttindadagur er 14. apríl 2015 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann 14. apríl 2015)
Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu
Sjá viðhengi – samþykkt samhljóða
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 200.000 kr. á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut.
Kjör stjórnar
Kristján Loftsson, Halldór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir, Rannveig Rist og Þórður Sverrisson
Kosning endurskoðanda
Endurskoðunarfélag: Deloitte ehf.
Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum
Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er.