Stjórn Marel hf. ákvað þann 4. ágúst 2015 að veita framkvæmdastjórn félagsins, að forstjóra undanskildum, kauprétti að allt að 2,2 milljónum hluta í félaginu.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel í mars 2015. Allir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel að forstjóra undanskildum fá sama magn kauprétta eða 200 þúsund hluti.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 1,346 á hlut [1] sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
- Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk í október 2018, síðan 20% í október 2019 og loks 20% í október 2020. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021, þegar samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem næst nettó hagnað (eftir skatta og kostnað) af innleystum kaupréttum og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.
Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að eru 11,5 milljónir, sem nemur um 1,6% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu fimm árum er áætlaður um 488 þúsund evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
| Nafn: | Staða: | Nýr kaupréttur | Fyrri og ónýttur kaupréttur | Eignarhluti í eigin nafni og eða tengdra aðila |
| Anton de Weerd | Yfirmaður kjúklingaiðnaðar | 200.000 | 540.000 | 0 |
| Árni Sigurðsson | Yfirmaður stefnumótunar og þróunar | 200.000 | 225.000 | 100.000 |
| Davíð Freyr Oddsson | Yfirmaður mannauðsmála | 200.000 | 285.000 | 50.000 |
| David Wilson | Yfirmaður kjötiðnaðar | 200.000 | 435.000 | 0 |
| Gerrit den Bok | Yfirmaður frekari vinnslu | 200.000 | 435.000 | 0 |
| Linda Jónsdóttir | Fjármálastjóri | 200.000 | 345.000 | 62.500 |
| Paul van Warmerdam | Yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar | 200.000 | 285.000 | 0 |
| Pétur Guðjónsson | Yfirmaður alþjóðlegrar sölu og þjónustu | 200.000 | 540.000 | 219.430 |
| Sigsteinn Grétarsson | Aðstoðarforstjóri | 200.000 | 675.000 | 25.997 |
| Sigurður Ólason | Yfirmaður fiskiðnaðar | 200.000 | 225.000 | 0 |
| Viðar Erlingsson | Yfirmaður alþjóðlegrar nýsköpunar og þróunar | 200.000 | 345.000 | 0 |
[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 4. ágúst 2015, þ.e. ISK 198,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 147,08.