Fjarskipti hf. : Héraðsdómur sýknar Fjarskipti hf.


Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Fjarskipti hf. af kröfu 365 miðla ehf. (áður IP fjarskipti ehf./TAL) þess efnis að viðurkenndur yrði réttur 365 miðla til skaðabóta vegna meintrar ólögmætrar riftunar Fjarskipta hf. á tilteknum viðskiptasamningum milli félaganna.

Að öðru leyti vísast um ágreininginn til Kauphallartilkynningar Fjarskipta hf., dags. 17. febrúar 2014 og skýringar nr. 36 við ársreikning samstæðu Fjarskipta hf. vegna ársins 2014.

GlobeNewswire