Fundur Símans hf. með skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl 2016 kl. 16:00 í Ármúla 25, 108 Reykjavík
Dagskrá
- Ákvörðun um að breyta skilmála skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 (Heimild til fyrirframgreiðslu)
- Ákvörðun um að breyta skilmála skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 (Sérstök skilyrði)
- Ákvörðun um að breyta skilmála skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 (Veðsetningarbann)
- Staðfesting um heimild félagsins og Arion banka hf., sem reikningsstofnunar, til að undirrita viðauka við útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01
Atkvæðisréttur skuldabréfaeigenda í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 miðast við stöðu krafna þeirra þann 23. mars 2016.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.
Tillögur Símans hf. fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengjum.
Frekari upplýsingar veita Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, í farsíma 892 6699 og Óskar Hauksson, fjármálastjóri, í farsíma 899 6169.