Síminn hf. boðar til fundar með lánveitendum


Fundur Símans hf. með Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, og skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl 2016 kl. 16:45 í Ármúla 25, 108 Reykjavík

   Dagskrá

  1. Ákvörðun um að breyta tryggingarbréfi, upphaflega dags. 22. desember 2005, ásamt síðari breytingum.
  2. Ákvörðun um að breyta veðskjölunum, eins og þau eru skilgreind í samkomulagi um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku, dags. 13. júní 2013, milli Símans hf., Arion banka hf., sem lánveitandi og veðvörsluaðili, og eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01

Atkvæðisréttur lánveitenda miðast við stöðu krafna þeirra þann 23. mars 2016. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.

Tillögur Símans hf. fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengjum.

Frekari upplýsingar veita Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, í farsíma 892 6699 og Óskar Hauksson, fjármálastjóri, í farsíma 899 6169.


Anhänge

Síminn - Tillögur á fundi lánveitenda - 07 04 16.pdf Síminn - Umboðseyðublað vegna fundar lánveitenda - 07 04 16.pdf
GlobeNewswire