Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 10. mars 2016 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 965.000.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Stjórn Símans hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 243.000.000 hlutum eða 2,52% af útgefnum hlutum í Símanum hf., þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 862,5 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 10. mars 2017 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Kvika banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 10.669.966 hlutir sem er 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2016. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is

 

 

GlobeNewswire