Stjórn P/F Kall hefur komist að samkomulagi við Rúnar Reistrup um að hann taki við sem framkvæmdarstjóri félagsins næsta haust eftir að núverandi atvinnuskyldum hans í Bretlandi lýkur. Fram að þeim degi mun fjármálastjóri félagsins, Bárður Nielsen, gegna stöðu staðgengils framkvæmdarstjóra.
Rúnar hefur verið stjórnarmaður í P/F Kall frá 2013 og gegnt stöðu stjórnarformanns frá byrjun árs 2016. Rúnar hefur síðustu ár starfað hjá alþjóðlegum upplýsingatækni- og fjarskiptafyrirtækjum sem frumkvöðull og framkvæmdarstjóri. Meðal annars starfaði hann hjá Vodafone Group frá 2009 til 2013, og var frá 2011 Global Head of Products and Services.
P/F Kall er að 100% eigu Fjarskipta hf.. Líkt og á Íslandi er starfsemi félagsins í Færeyjum rekin undir vörumerkinu Vodafone á grundvelli samstarfssamnings við eitt stærsta fjarskiptafyrirtæki í heimi, Vodafone Group.