Fagfjárfestasjóðurinn ORK – Ársreikningur fyrir árið 2016


Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 35 þúsundum króna samkvæmt rekstrarreikningi á árinu 2016.
     
  • Hrein eign sjóðsins nam 741 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Árshlutareikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2016, efnahag hans 31. desember 2016 og breytingu á hreinni eign á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar um ársreikning Fagfjárfestasjóðsins ORK veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.


Anhänge

Fagfjárfestasjóðurinn ORK 2016.pdf
GlobeNewswire