Viðskiptayfirlit apríl 2017 - Nasdaq kauphöllin á Íslandi


Reykjavík, 2. maí, 2017 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir apríl 2017 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í mars námu 37.692 milljónum eða 2.356 milljónum á dag. Það er 26% lækkun frá fyrri mánuði, en í mars námu viðskipti með hlutabréf 3.170 milljónum á dag.  Þetta er 6% hækkun á milli ára (viðskipti í apríl 2016 námu 2.220 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Símans (SIMINN), 5.555 milljónir, Haga (HAGA), 4.935 milljónir, Reita fasteignafélags (REITIR), 4.563 milljón, Marel (MARL), 3.953 milljónir, og N1 (N1), 3.797 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 6,89% á milli mánaða og stendur nú í 1.837 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 28,9% (23,8% á árinu), Arctica Finance með 15,1% (11% á árinu), og Landsbankinn með 14,9% (22,1% á árinu).

·         Í lok apríl voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.073 milljörðum króna (samanborið við 1.019 milljarða í mars).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 57,2 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 3,57 milljarða veltu á dag. Þetta er 63% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í mars námu 9,7 milljörðum á dag), og 33% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í apríl 2016 námu 5,4 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 39 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 11,5 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 4,5 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 28 1115, 6,3 milljarðar, RIKB 22 1026, 6,2 milljarðar, RIKB 20 0205, 6,0 milljarðar, RIKB 19 0226, 5,1 milljarðar, RIKS 21 0414, 4,8 milljarðar og RIKB 31 0124, 4,7 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 22,8% (18,5% á árinu), Landsbankinn með 19,9% (14,5% á árinu), og Arion banki með 19,1% (16,3% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 1,6% í apríl og stendur í 1.288 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,5% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 2,0%.                              

Sjá myndir (excel) í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 89 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,800 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 11 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/ 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhanns
         kristin.johannsdottira@nasdaq.com
         sími: 868 9836

hlutdeild apríl 2017
hlutdeild skuldabréf apríl 2017

Anhänge

2017_0502_Viðskiptayfirlit fyrir apríl 2017.pdf Hlutd myndir 201704.xlsx
GlobeNewswire