Síminn: Reglubundin tilkynning um kaup Símans á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 20. viku 2017 keypti Síminn hf. 15.000.000 eigin hluti að kaupverði 62.800.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:   

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.)
16.5.2017 14:37 5.000.000 4,18   20.900.000   
18.5.2017 11:12 5.000.000 4,19 20.950.000   
19.5.2017 14:10 5.000.000 4,19 20.950.000   
    15.000.000          62.800.000   

Síminn átti ekki eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 15.000.000 eigin hluti eða sem nemur 0,16% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í  Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2017. 

Síminn hefur keypt samtals 15.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,16% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 62.800.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is

GlobeNewswire