Samsett hlutfall var 97,5% í október en það var 98,9% í október 2016.
Samsett hlutfall frá áramótum er 95,3% og síðustu 12 mánuði er það 96,2%.
VÍS greiddi viðskiptavinum tjónabætur fyrir tæplega 1,1 milljarð króna í október. Á árinu hefur VÍS greitt viðskiptavinum um 12,6 milljarða króna í tjónabætur.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum
**Hafa ber í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða