Nýherji hf. - Breyting á auðkenni tilboðabókar


Nýherji og dótturfélögin Applicon og TM Software hafa sameinast undir nafninu Origo, sjá tilkynningu frá félaginu dags. 5. janúar 2018. Af þessu tilefni verður auðkenni tilboðabókar Nýherja í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland breytt í ORIGO frá og með 11. janúar 2018. Nafni Nýherja í viðskiptakerfinu verður hins vegar ekki breytt fyrr en hluthafafundur félagins hefur samþykkt nafnabreytinguna.

Nafn félags  Núverandi auðkenni        Nýtt auðkenni        Dags. breytingar

Nýherji hf.     NYHR                                ORIGO                    11.1.2018

GlobeNewswire