Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.
Heildartilboð í útboðinu voru 12 talsins og námu samtals 1.440 m. kr. að nafnverði.
Eitt tilboð að fjárhæð 100 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu 5,51%. Þessu tilboði tekið var ekki tekið í flokkinn.
Fimm tilboð að fjárhæð 420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,65%-2,68%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,68%. Heildarstærð flokksins verður 14.800 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Sex tilboð að fjárhæð 920 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,65%-2,68%. Tilboðum að fjárhæð 320 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,65%. Heildarstærð flokksins verður 25.760 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. maí 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.