Flöggunartilkynning frá Stefni hf. N1 hefur hækkað hlutafé félagsins um 79.573.913 kr. Hlutafé félagsins er nú 329.573.913 kr. Hið nýja hlutafé er lagt fram sem hluti af greiðslu fyrir kaupverð á Festi hf. til SF V slhf. sem hefur rekstrarsamning við Stefni hf. SF V slhf. mun afhenda hluthöfum sínum hluti í N1 að fengu samþykki hluthafafundar. Aðliar hafa undirgengist sölubann á samanlagt 41.530.435 hlutum til 31. desember 2018. Hlutfallslega jafnmargir hlutir í eigu hvers endanlegs eiganda verða háðir sölubanni. Hlutirnir eru teknir til viðskipta í kauphöll í dag, 28. ágúst 2018. Stefnir á ekki hluti í N1 með beinum hætti en fer með beinan ráðstöfunarrétt yfir þeim atkvæðum sem aðilar í rekstri félagsins búa yfir. Sjá nánar í meðfylgjandi flöggunartilkynningu.