Festi hf.: Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2018 þann 27. febrúar 2019


Festi birtir uppgjör sitt fyrir 4. ársfjórðung 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 27. febrúar næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/fjarfestatengsl

GlobeNewswire