Landsbankinn mun halda lokað útboð á víxlum mánudaginn 4. mars 2019 kl. 15:00. Boðnir verða til sölu þrír nýir víxlaflokkar: LBANK 190812, LBANK 190910 og LBANK 200310.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Nánari upplýsingar má nálgast í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.