Breyting á framkvæmdastjórn


Jónas Guðbjörnsson, fjármálastjóri HB Granda, mun hætta störfum hjá félaginu 30. júní nk. Hann mun verða félaginu áfram til halds og trausts næstu mánuðina. Jónas hefur starfað hjá félaginu í 9 ár. 

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda hf.: “Ég vil fyrir hönd félagsins þakka Jónasi Guðbjörnssyni vel unnin störf nú í nærri áratug fyrir HB Granda. Hann hefur reynst traustur og áreiðanlegur fjármálastjóri og lagt sitt af mörkum til þess góða fjárhags sem félagið býr við í dag.”

GlobeNewswire