Festi hf.: Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2019 þann 28. ágúst 2019


Festi birtir uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2019 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. ágúst næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. ágúst 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/fjarfestatengsl

GlobeNewswire