Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd


Aðalfundur Símans hf. verður haldinn rafrænt fimmtudaginn 10. mars 2022 kl. 16:00. Framboðsfrestur til stjórnar og í tilnefningarnefnd rann út þann 5. mars síðastliðinn kl. 16:00.

Framboð til stjórnar
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  • Arnar Þór Másson
  • Bjarni Þorvarðarson
  • Björk Viðarsdóttir
  • Jón Sigurðsson
  • Sigrún Ragna Ólafsdóttir

Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. Í samræmi við samþykktir félagsins skulu fimm stjórnarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári og er því sjálfkjörið í stjórnina.

Framboð í tilnefningarnefnd
Eftirtaldir aðilar hafa verið tilnefndir til setu í tilnefningarnefnd:

  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir
  • Steinunn Kristín Þórðardóttir
  • Sverrir Briem

Í samræmi við samþykktir félagsins skulu þrír nefndarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári og er því sjálfkjörið í nefndina.

Upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem er að finna inn á heimasíðu Símans: https://www.siminn.is/umsimann/fundir.

Fundurinn verður haldinn að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 Reykjavík og geta hluthafar einnig sótt fundinn, þótt fundurinn sé rafrænn. Sérstök athygli er vakin á því að atkvæðagreiðslur og umræður verða einungis rafrænar á aðalfundinum.

Allir hluthafar sem ætla að sækja fundinn skulu skrá sig á https://www.lumiconnect.com/meeting/siminn eigi síðar en klukkan 16:00 daginn fyrir fund, þ.e. miðvikudaginn 9. mars 2022.