Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2022


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn rafrænt og í salnum Gullteig A á Grand Hótel Reykjavík, kl. 16:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022.

Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar auk tillagna stjórnar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er sérstök athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirhugað fyrirkomulag rafrænnar þátttöku í fundinum og tillögum um breytingar á starfskjarastefnu og á samþykktum félagsins.

Ársskýrsla, sem inniheldur ársreikning 2021, hefur þegar verið birt og samfélagsskýrsla er aðgengileg á heimasíðu félagsins.

Viðhengi



Anhänge

Aðalfundarboð 2022 Dagskrá aðalfundar 2022 Framboð í tilnefningarnefnd (eyðublað) Framboð til stjórnarsetu (eyðublað) Samþykktir Skýrsla tilnefningarnefndar Starfskjarastefna Tillögur stjórnar fyrir aðalfund 2022 Umboð vegna aðalfundar 2022 Yfirlit tillagna að samþykktabreytingum Agenda 2022 (English translation) Proposals (English translation)
GlobeNewswire