Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum mánudaginn 21. ágúst kl. 15:00. Boðinn verður til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 27.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 23 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 99,066.
Áætlaður uppgjörsdagur er 28. ágúst 2023.
Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.