- Áætlað er að útgáfa ríkisbréfa nemi 120 ma.kr. að söluvirði árið 2024.
- Fyrirhugað er að gefa út nýjan óverðtryggðan ríkisbréfaflokk með gjalddaga 2027. Stærð flokka og markaðsaðstæður munu ráða því hversu mikið verður selt í öðrum flokkum.
- Til greina kemur að mæta fjárþörf ríkissjóðs á árinu að hluta til með erlendri útgáfu eða hagnýtingu erlendra innstæðna hjá Seðlabanka Íslands.
Viðhengi