Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing: Innborgun á höfuðstól
Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. febrúar næstkomandi. Sjóðurinn mun því mánudaginn 17. febrúar 2025 greiða alls 1.000.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda.