REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 28. janúar 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
                               
Í 6. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 735.042 eigin hluti að kaupverði 84.643.546 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:                  


DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
3/2/2513:411.442113,00162.94612.101.442
3/2/2515:19100.000113,2511.325.00012.201.442
4/2/2513:17100.000114,5011.450.00012.301.442
5/2/2510:04100.000116,0011.600.00012.401.442
5/2/2514:19100.000115,0011.500.00012.501.442
6/2/2513:14100.000114,5011.450.00012.601.442
6/2/2513:59100.000115,0011.500.00012.701.442
7/2/2510:0725.600116,002.969.60012.727.042
7/2/2514:228.000117,00936.00012.735.042
7/2/2514:45100.000117,5011.750.00012.835.042
Samtals 735.042 84.643.54612.835.042


Reitir hafa nú keypt samtals 2.285.042 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 57,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 260.116.046 kr. sem samsvarar 57,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
                  
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 450 milljónir króna.
                  
Frá birtingu stjórnendauppgjörs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 2.285.042 eigin hluti fyrir 260.116.046 kr.   
                  
Reitir eiga nú samtals 12.835.042 eigin hluti, eða um 1,80% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 698.714.958.  
                  
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.