Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðs

Reykjavik, Iceland


Kaldalón hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki KALD 25 0901. Tilboð bárust fyrir 1.140 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 8,55%-8,70% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir.kr. á 8,70% vöxtum.

Greiðslu og uppgjörsdagur er mánudagurinn 3. mars 2025. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og verður fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara.

Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is