Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. fjárfestir í Thor Landeldi


Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hefur skráð sig fyrir 900 milljón króna fjárfestingu í Thor Landeldi, sem er gerð í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu í Thor Landeldi. Áætlað er að ÚR muni eiga um 24,4% beinan og óbeinan eignarhlut í Thor Landeldi í kjölfar fjárfestingarinnar. 

Útgerðarfélag Reykjavíkur telur fjárfestingu í Thor Landeldi vera tækifæri til að styðja við sjálfbæra og hátæknivædda matvælaframleiðslu á Íslandi. Fjárfesting í landeldi er að mati ÚR mikilvægt framlag til byggðar, atvinnulífs og vistvænnar framtíðar. 

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR, í síma 580-4227.