Reykjavíkurborg niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 44 1.

Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 1.590 m.kr. að nafnvirði á kröfubilinu 3,55% - 3,75%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 530 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,65%. Útistandandi fyrir útboð voru 10.726 m.kr. að nafnvirði, að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð RVK 44 1 er nú 11.256 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 25. nóvember.

Nánari upplýsingar veitir:

Bjarki Rafn Eiríksson
skrifstofa fjárstýringar og innheimtu,
netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is