Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 29 0416 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða greiðsla með reiðufé


FlokkurRIKB 29 0416RIKB 42 0217
ISINIS0000039121IS0000033884
Gjalddagi16.04.202917.02.2042
Útboðsdagur07.08.202607.08.2026
Uppgjörsdagur12.08.202612.08.2026
10% viðbót11.08.202611.08.2026
   
UppkaupsflokkurRIKB 26 1015 
Uppkaupsverð (clean)99,7100 

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.


GlobeNewswire