Bera hf.: Húsleit Samkeppniseftirlitsins og upphaf máls


Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf. og tilkynnt félaginu um upphaf máls vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. á 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Ákvæðið leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu. Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn sem á þessu stigi tekur til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag. Félagið mun veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til.


GlobeNewswire