Ásar hf. - Útgáfa á nýjum víxlaflokki


Ásar hf. hefur lokið sölu á nýjum víxlaflokki ASAR270421, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins.

Alls bárust tilboð að nafnvirði kr. 1.240.000.000, á bilinu 8,550% - 8,650% flötum vöxtum. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 1.080.000.000 á 8,568% flötum vöxtum.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 22. október 2026. Sótt verður um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Nasdaq Iceland mun tilkynna fyrsta viðskiptadag með að minnsta kosti eins dags fyrirvara.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu og útgáfu víxlanna sem og töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d- liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veita: Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri, hjortur.steindorsson@asar.is og verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.


GlobeNewswire