Hampiðjan hf.: Breyting á samningi um viðskiptavakt


Hampiðjan hf. og Íslandsbanki hf. hafa samið um breytingar á fyrirkomulagi viðskiptavaktar Íslandsbanka með hlutabréf Hampiðjunnar hf. á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Samkvæmt breyttu fyrirkomulagi mun Íslandsbanki sem viðskiptavaki setja fram kaup- og sölutilboð daglega í hlutabréf Hampiðjunnar í eigin reikning, í viðskiptakerfi tengdu Nasdaq Iceland, áður en markaður er opnaður. Tilboðin skulu vera að lágmarki 8 milljónir króna að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Íslandsbanki hefur það sem markmið að setja fram fleiri en eitt tilboð á bæði kaup- og söluhlið hlutabréfanna þannig að summa tilboðanna sé að lágmarki 8 milljónir króna að markaðsvirði. Íslandsbanka ber þó ekki skylda til þess að auka fjölda tilboða umfram eitt tilboð á hvorri hlið. Íslandsbanka er heimilt að uppfæra tilboð á annarri eða báðum hliðum tilboðabókar hlutabréfanna eftir þörfum án þess að öllum tilboðum á viðkomandi hlið hafi verið tekið að fullu.

Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða Íslandsbanka verður 2,5%, reiknað sem magnvegið meðaltal allra tilboða bankans í tilboðabók Hampiðjunnar hverju sinni. Daglegt hámarksmagn Íslandsbanka í hlutverki viðskiptavaka með hlutabréf Hampiðjunnar skal takmarkast við, kaup eða sölu að nettó 16 milljónum króna að markaðsvirði. Daglega hámarksmagnið reiknast sem mismunur á kaup- og sölutilboðum Íslandsbanka sem viðskiptavaka, sem gengið hefur verið að. Þegar nettó hámarksmagni dagsins er náð, fellur niður skylda Íslandsbanka til að setja fram tilboð á þeirri hlið sem fyllt hefur verið. Þegar gengið hefur verið að tilboði Íslandsbanka á mótlægri hlið og nettó markaðsvirði dagsins er aftur komið undir daglegt hámark, virkjast tilboðsskylda aftur á bæði kaup- og söluhlið.

Samningurinn er ótímabundinn og gildir frá og með 5. nóvember 2026. Samningsaðilum er heimilt að segja samningum skriflega upp hvenær sem er á samningstímanum með 7 daga fyrirvara.

Viðskiptavakt Kviku banka hf. með hlutabréf Hampiðjunnar hf. helst óbreytt.

Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664 3361.


GlobeNewswire