Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. („ÚR”) hélt í gær lokað útboð á nýjum skuldabréfaflokki UR 291116. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nadsaq Iceland og eru gefin út undir útgáfuramma félagsins.
UR 291116 er óveðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda 1 mánaða REIBOR að viðbættu 1,30% vaxtaálagi með lokagjalddaga þann 16. nóvember 2029.
Heildartilboð í flokkinn námu samtals 3.600 m.kr. að nafnvirði með álagi á 1 mánaða REIBOR á bilinu 1,17% - 1,35%. Tilboðum að fjárhæð 3.540 m.kr. var tekið á 1,30% álagi á 1 mánaða REIBOR.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudagur, 16. nóvember 2026.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a-,b-, c- og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sem innleidd var með lögum nr. 14/2020.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með útboðinu, útgáfu og töku hinna nýju skuldabréfa til viðskipta ásamt því að annast innheimtu og uppgjör í tengslum við útboðið.
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR:
„Við hjá ÚR erum sem fyrr þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna félaginu. Það er ljóst að innlendur fjármálamarkaður hefur trú á fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi.”
Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is