Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að lokinni seinni umræðu, þriðjudaginn 24. nóvember. Einnig var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2028-2030.
Óverulegar breytingar urðu á fjárhagsáætluninni milli umræðna en einstaka gjaldliðir ýmist hækkuðu eða lækkuðu.
Gert er ráð fyrir 344,1 milljón króna rekstrarafgangi samstæðunnar, sem er 9,5 milljónum króna meiri afgangur en við fyrri umræðu. Í áætlun Kópavogsbæjar er ekki gert ráð fyrir tekjum vegna úthlutunar lóða.
Milli umræðna voru fjárfestingar ársins 2027 endurmetnar og lækka áætluð fjárfestingarútgjöld um 770 milljónir króna samkvæmt yfirliti yfir breytingarnar. Breytingarnar skýrast fyrst og fremst af breyttri tímasetningu framkvæmda sem fyrirséð er að komist ekki að fullu til framkvæmda á árinu 2027.
Ný framsetning fjárhagsáætlunar
Framsetningu fjárhagsáætlunar hefur jafnframt verið breytt frá fyrri umræðu til samræmis við nýjar reglur um flokkun og framsetningu fjárhagsáætlana og ársreikninga sveitarfélaga. Þessar breytingar hafa engin áhrif á heildarrekstrarniðurstöðu, enda er eingöngu um breytta flokkun útgjalda að ræða.
Góður rekstur skili sér til heimilanna
„Ábyrg fjármálastjórn snýst fyrst og fremst um að fara vel með skattfé bæjarbúa og forgangsraða verkefnum með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður gerum við ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu og að skuldir bæjarins haldist óbreyttar. Á næsta ári eru fyrirhugaðar umfangsmiklar fjárfestingar, ekki síst í uppbyggingu nýrra skóla og bættri aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur. Við leggjum jafnframt áherslu á að efla menntun með fjölgun kennara, styrkja þjónustu við fjölskyldur og bæta þjónustu við eldri bæjarbúa. Við viljum að góður rekstur skili sér beint til heimilanna. Þess vegna leggjum við áherslu á að halda fasteignagjöldum heimila áfram meðal þeirra lægstu á landinu og takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5%. Með því viljum við létta undir með heimilunum á sama tíma og við leggjum okkar af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi. Markmiðið er skýrt, að byggja upp öflugt og gott samfélag þar sem metnaðarfull uppbygging, öflug þjónusta og ábyrg fjármálastjórn fara saman. Við ætlum ekki að láta annað koma niður á hinu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Viðhengi