Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa


Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokknum EIK 120266.

Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 1.340 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,00%.

Niðurstaða útboðs:

FlokkurEIK 120266
Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur1.12.2026
Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.300 m.kr.
Samþykkt ávöxtunarkrafa4,00%
Fjöldi innsendra tilboða5
Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.340 m.kr.
Fjöldi samþykktra tilboða5
Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,966%
Boðhlutfall1,03

Þetta var sjötta útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 8.000 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.

Þetta var síðasta útboð ársins samkvæmt útgáfuáætlun félagsins sem birt var í janúar 2026. Félagið hefur haldið átta skuldabréfaútboð á árinu og selt skuldabréf í þremur flokkum að nafnvirði samtals 20.000 m.kr. til breiðs hóps fjárfesta:

  • EIK 120266: 8.000 m.kr.
  • EIK 150531: 7.000 m.kr.
  • EIK 29 1: 5.000 m.kr.

Félagið mun birta útgáfuáætlun fyrir árið 2027 í þriðju viku desember (14.–18. desember). Þar mun m.a. koma fram fjöldi útboða, dagsetningar þeirra og þeir flokkar sem félagið hyggst gefa út.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980.


GlobeNewswire