Nýherji - Aðalfundur föstudaginn 26. janúar 2007 kl. 16:00


Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn föstudaginn 26. janúar 2007 í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37, og hefst fundurinn kl. 16:00. 

Á dagskrá fundarins verða: 

1.  Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.5 í samþykktum félagsins. 

2.  Tillaga um heimild stjórnar um aukningu hlutafjár sbr. 41. gr. hlutafélagalaga. 

3.  Tillaga um lækkun á hlutafé um kr. 13 milljónir, sem framkvæmd verður með þeim hætti að færð verði niður   bréf í eigu félagsins. 

4.  Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55 gr. hlutafélagalaga. 

5.  Önnur mál, löglega upp borin. 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða að gera það skriflega. Ársreikningur og tillögur sem lagðar verða fram á fundinum verða settar á vef félagsins, www.nyherji.is, þann 19. janúar nk. 


Attachments

Nyherji - Annual Meeting.pdf Auglysing aalfundar Nyherja.pdf