Félagsbústaðir, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almenningsheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær. Lykiltölur úr ársuppgjöri Félagsbústaða hf. Uppgjör Uppgjör Uppgjör Uppgjör Rekstrarreikningur í millj.kr. 2006 2005 2004 2003 Rekstrartekjur samtals 1.576 1.296 1.190 1.082 Aukning rekstrartekna 21,6% 8,9% 10,0% 22,6% Rekstrargjöld samtals 823 757 703 659 Aukning rekstrargjalda 8,7% 7,7% 6,7% 21,7% Rekstrarhagnaður 753 539 487 423 Fjármagnskostnaður 1.211 757 624 431 Tap fyrir matsbreytinu og söluhagnað eigna (458) (218) (137) (8) Endurgreiddur eignarskattur 0 0 33 0 Matsbreyting og söluhagnaður fjárfestingaeigna 1.294 4.831 1.594 959 Hagnaður ársins 836 4.613 1.490 951 Efnahagsreikningur í millj.kr. 31-des-06 31-des-05 31-des-04 31-des-03 Eignir samtals 26.592 22.634 16.789 14.060 Skuldir samtals 14.595 11.518 10.332 9.138 Eigið fé samtals 11.997 11.116 6.457 4.922 Eiginfjárhlutfall 45,1% 49,1% 38,5% 35,0% Sjóðstreymi í millj.kr. Veltufé frá rekstri 317 215 251 188 Handbært fé frá rekstri 287 233 288 277 Keyptar fasteignir mkr. 3.069 1.379 1.243 1.750 Söluverð seldra eigna 365 344 190 367 Fjöldi starfsmanna að meðaltali 23 22 22 22 Fjölgun íbúða á árinu 224 50 151 125 Fjöldi íbúða í árslok 1.963 1.739 1.689 1.538 Rekstur og afkoma Leigutekjur Félagsbústaða á árinu 2006 námu 1.576 millj. kr., sem er 22% aukning tekna frá árinu á undan. Hækkunin skýrist annars vegar af hækkun leigu samkvæmt neysluverðsvísitölu og hins vegar af fjölgun íbúða í útleigu á árinu. Tap varð á rekstri félagsins á árinu 2006 fyrir matsbreytingu og söluhagnað fjárfestingaeigna að fjárhæð 458 millj. kr. miðað við 218 millj. kr. tap árið á undan. Aukið rekstrartap félagsins á árinu skýrist af hækkun verðbóta langtímalána en þær jukust um 343 millj. kr. eða um 80% frá árinu á undan. Þegar hins vegar tekið er tillit til matsbreytinga og söluhagnaðar fjárfestingaeigna nemur hagnaður af rekstri félagsins 836 millj. kr. á árinu 2006 miðað við 4.613 millj. kr. hagnað árið áður. Efnahagur Fjárfestingaeignir Félagsbústaða hf. eru færðar á gangverði í samræmi við hækkun fasteignamats eigna á árinu og nam bókfært verð þeirra 26.288 millj. kr. í árslok 2006 en námu 22.329 millj. kr. árið áður. Eigið fé félagsins nam 11.997 millj. kr. að meðtöldu 2.175 millj. kr. hlutafé borgarsjóðs. Eiginfjárhlutfall Félagsbústaða var 45% í árlok 2006 og hefur lækkað úr 49% frá árinu á undan. Rekstur Félagsbústaða skilaði 317 millj. kr. hreinu veltufé á árinu 2006. Handbært fé frá rekstri nam 287 millj. kr. samanborið við 233 millj.kr. árið áður. Kaup og sala íbúða Á árinu 2006 voru keyptar samtals 249 íbúðir en þar af voru keyptar 124 þjónustuíbúðir af Reykjavíkurborg ásamt þjónusturými í tveimur þjónustkjörnum fyrir aldraða að Dalbraut 21-27 og Norðurbrún 1. Á árinu voru seldar 25 íbúðir og er því fjölgun almennra leiguíbúða 100 á árinu. Í árslok 2006 eiga Félagsbústaðir samtals 1963 íbúðir en þar af eru 296 þjónustuíbúðir fyrir aldraða.