- Samson eignarhaldsfélag ehf. Beiðni um greiðslustöðvun


Stjórn Samson eignarhaldsfélags ehf. óskaði í dag, 7. október 2008, eftir því
við Héraðsdóm Reykjavíkur að félaginu yrði veitt heimild til greiðslustöðvunar.
Beiðnin var tekin fyrir kl: 15:00 og var félaginu veitt heimild til
greiðslustöðvunar allt til þriðjudagsins 28. október 2008 klukkan 15:00. Var
Gunnar Sturluson, hrl., Logos lögmannsþjónustu sf., skipaður aðstoðarmaður
félagsins á greiðslustöðvunartímabilinu.