Breytingar á fjárhagsdagatali


SPRON hf. frestar birtingu uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung vegna
áframhaldandi óvissu á íslenskum fjármálamarkaði. Uppgjör þriðja ársfjórðungs
verður birt í viku 48 í stað 46 eins og áður var auglýst. Birtingardagur og
upplýsingar um kynningarfund í tengslum við uppgjörið verða kynnt síðar. 

Frekari upplýsingar veitir Jóna Ann Pétursdóttir, forstöðumaður almannatengsla
í síma 550 1771.