Uppgjör Haga hf. fyrir rekstrarárið 010308 - 280209 mun ekki verða birt að svo stöddu eins og áform voru um. Á grundvelli 2. mgr. 56. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti er félögum sem eingöngu hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki uppgjör í Kauphöll að því gefnu að lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs sé a.m.k. 50.000 EUR að nafnvirði á útgáfudegi bréfanna. Árseikningar Haga hf. verða lagðir fyrir á aðalfundi félagsins. Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason í síma 530 5500