Héraðsdómur Reykjavíkur veitir Hf. Eimskipafélagi Íslands heimild til að leita nauðasamning


Fréttatilkynning:


HF. Eimskipafélag Íslands

Héraðsdómur Reykjavíkur veitir Hf. Eimskipafélagi Íslands heimild til að leita
nauðasamnings 

Hf. Eimskipafélag Íslands lagði fram beiðni um heimild til
nauðasamningsumleitana hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Áform þessa
efnis voru kynnt á aðalfundi félagsins þann 30. júní 2009. 

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á að veita félaginu heimild til að leita
nauðasamnings samkvæmt frumvarpi félagsins. Garðar Garðarsson
hæstaréttarlögmaður var skipaður umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum
félagsins. 

Frumvarp að nauðasamningi hljóðar svo:

“Lánardrottnum sem fara með samningskröfur (“lánardrottnar”) er boðið að breyta
kröfum sínum á hendur Eimskip í L1003 ehf. (sem verður breytt í Eimskipafélag
Íslands ehf.) kt. 690409-0460, (“Nýja-Eimskip”) sem má jafna til að þeim sé
boðin greiðsla á 11,9% krafna sinna. 

1.	Eimskip mun afhenda 54,1% af hlutafé Nýja Eimskips til lánardrottna, en það
samsvarar greiðslu á 11,9% krafna þeirra. Afhendingin mun eiga sér stað svo
fljótt sem verða má og eigi síðar en innan 30 daga frá því að nauðasamningur
telst kominn á. 
2.	Engir vextir verða greiddir vegna krafna lánardrottna frá þeim degi sem
frumvarp þetta telst komið á og þar til hlutafé Nýja Eimskips verður flutt til
lánardrottna. 
3.	Trygging verður ekki veitt fyrir greiðslum samkvæmt framangreindu.”