Endurútreikningur gengistryggðra lána

Ráðstöfun endurgreiðslu


Í viðauka við lýsingu Haga hf., sem gefinn var út 9. desember sl., voru upplýsingar um bætta fjárhagsstöðu félagsins vegna endurútreiknings Arion banka á gengistryggðum lánum, sem gerð höfðu verið upp árið 2009. Endurútreikningurinn er á grundvelli ákvæðis 18. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

 

Á stjórnarfundi Haga hf. þann 16. desember var ákveðið að ráðstöfun endurgreiðslunnar yrði nýtt til niðurgreiðslu á láni félagsins hjá Arion banka eða samtals kr. 514.282.295.

  

 

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.